
Marta Czyz
Marta Czyż er listfræðingur, sjálfstæður sýningarstjóri og gagnrýnandi sem býr og starfar í Varsjá. Hún var sýningarstjóri pólska skálans á Feneyjatvíæringnum árið 2024 (með sýningu frá úkraínska hópnum Open Group). Hún rannsakar sögu sýninga í Póllandi og starfsvið sýningarstjóra. Frá árinu 2019 hefur hún einbeitt sér að úkraínskri list.
Marta útskrifaðist frá listfræðideild Varsjárháskóla, lauk sýningarstjóranámi við Jagiellonian háskólann í Kraká. Hún var Erasmus nemi við Freie Universitat í Berlín. Hún hefur sett upp sýningar í CCA Ujazdowski kastalanum í Varsjá, Zachęta National Gallery of Art í Varsjá, BWA Zielona Góra (Póllandi), MOS Gorzów (Póllandi) og Þjóðminjasafninu í Szczecin (Póllandi) og fleira.
Árið 2020 stýrði hún Festival of Ephemeral Arts í Sokolowsko (Póllandi) og Youth Triennale í Center for Polish Sculpture í Oronsko (Póllandi). Árið 2022 sýningarstýrði hún sýningunni „Samfélag vonleysis“ í History Meeting House í Varsjá (með Yuriy Biley).
Hún skrifar reglulega texta fyrir sýningar og skrifar gagnrýni í blöð og tímarit. Árið 2015 gaf hún út (ásamt Juliu Wielgus) bókina "Í ramma sýningarinnar - samtöl við sýningarstjóra". Marta er styrkhafi pólska menningarmálaráðuneytisins og er meðlimur í AICA.