Listasafn Samúels Jónssonar

Listasafn Samuels

Samúel Jónsson (1884-1969) hefur verið nefndur „listamaðurinn með barnshjartað“. Þegar hann fékk ellilífeyri byggði hann listasafn og kirkju, gerði líkön af fjarlægum merkisbyggingum og málaði listaverk í afskekktum dal við ysta haf, án þess að hafa notið nokkurrar tilsagnar í myndlist. Að Brautarholti í Selárdal bjó hann til styttur af selum, ljónum, sæhesti, önd með unga sína á bakinu og af Leifi heppna. Ekki nóg með það, heldur reisti hann einn síns liðs heila safnbyggingu yfir verk sín auk kirkju sem hann ætlaði að varðveita altaristöflu sem sóknarkirkjan hafði hafnað. Á veturna málaði hann og skar út rammana um verk sín. Eftir að Samúel lést lágu verk og byggingar hans undir skemmdum í mörg ár.

Staðsetning:

Selárdalur, 451 Patreksfjörður

Vefsíða:

Merki:

Safn

Opnunartímar:

Opið júní-ágúst

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur