Íslenski bærinn

Íslenski bærinn fóstraði þjóðina í aldanna rás og var um leið vagga innlendrar menningar, allt í senn  fallegur, frumlegur og fínlegur  í sinni náttúrulegu mýkt. Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp, sýningarstaður, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu, fræðimennsku, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar.

Staðsetning:

Austur Meðalholtum, 801 Selfoss

Merki:

Safn

Opnunartímar:

1. jún – 15. sep. Opið daglega: 13:00 – 18:00

16. sep – 31. maí. Opið eftir samkomulagi

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur