Brugg

Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Hildur Margrétardóttir, Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttur frá Munkaþverá, Ólöf Oddgeirsdóttir

Brugg

Sýningin Brugg er haldin í tilefni þess að sýnendahópurinn fagnar á þessu ári tveggja áratuga sýningarafmæli.

Sýningarhald hópsins hófst 17. júní 2004, á 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins, og næsta áratuginn lögðu listamennirnir land undir fót og héldu níu sýningar í sex sveitarfélögum og tveimur löndum.

Sýningarstaðirnir voru með ævintýralegasta móti: fyrrum ullarverksmiðja á Álafossi, gömul hlaða í Reykjahlíð við Mývatn, yfirgefnar verbúðir og síldarverksmiðja í Ingólfsfirði á Ströndum, Síldarminjasafnið á Siglufirði, hrumt verslunarhús á Þingeyri og tómt samkomuhús á Stokkeyri – en hópurinn hefur gjarnan sóst eftir því að sýna í óvenjulegu húsnæði á sérstökum stöðum og hefur menning, saga og náttúra staðanna verið veigamikill þáttur í merkingarsamhengi sýninganna.

Sýningarnar voru kenndar við íslenska lýðveldið: lækinn, vatnið, fjörðinn, eyrina, planið, fjöruna – og strætið þegar hópurinn sýndi á mölinni; í húsi Sambands íslenskra myndlistarmanna í Hafnarstræti í Reykjavík. Lokasýningin, Lýðveldið í Höfn, var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sjötugasta afmælisári íslenska lýðveldisins. Samfara sýningarhaldinu var gefin út þríþætt sýningarskrá.

Árið 2016 efndi hópurinn til nýrrar sýningarraðar, fyrst með sýningunni Brjóstdropar í Nesstofu á Seltjarnarnesi og svo með Mixtúru á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum sem opnuð var á kvenréttindadeginum, hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi, þann 19. júní 2020. Nú er komið að því að brugga ljóða slag, svo vitnað sé í Látra-Björgu, að hætti myndlistar með sýningunni Brugg, á 80 ára afmælisári íslenska lýðveldisins.

Vaxi mugga og vindurinn

vil ég brugga ljóða slag

sigli dugga ein hér inn

oss að hugga nú í dag.

Opnunartími er fimmtudaga til sunnudaga frá 8. til 17. mars, kl. 14-18, eða eftir pöntun. Gengið er inn í sal Íslenskrar grafíkur hafnarmegin. Nánari upplýsingar í síma: 692 9048.

Listamenn: Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Hildur Margrétardóttir, Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttur frá Munkaþverá, Ólöf Oddgeirsdóttir

Dagsetning:

08.03.2024 – 17.03.2024

Staðsetning:

Íslensk grafík

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningEnginn aðgangseyrir

Opnunartímar:

MánudagurLokað
ÞriðjudagurLokað
MiðvikudagurLokað
Fimmtudagur14:00 - 17:00
Föstudagur14:00 - 17:00
Laugardagur14:00 - 17:00
Sunnudagur14:00 - 17:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur