ECHO
Echophilosophic Dialogue
Hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Echo, fimmtudaginn 13. febrúar 2025, klukkan 17-20. Sendiherra Noregs á Íslandi, Cecilie Annette Willoch,opnar syninguna. Boðið verður upp á léttar veitingar. Öll velkomin.
Sýnendur:
Cathrine Finsrud (NO)
Elva Hreiðarsdóttir (IS)
Gíslína Dögg Bjarkadóttir (IS)
Hildur Björnsdóttir (IS/NO)
Lill-Anita Olsen (NO)
Soffía Sæmundsdóttir (IS)
Sýningarstjóri: Páll Haukur Björnsson
Sýningin stendur 13.- 23. febrúar og er opin daglega frá kl 13-17
Sýningarspjall verður laugardaginn 15. febrúar og sunnudaginn 23. febrúar kl. 15.
Hlöðuloftið er staðsett á Korpúlfsstöðum, Thorsvegi 1, 112 Reykjavík (gengið upp rampinn).
Um sýninguna
Fimmtudaginn 13. febrúar kl 17-20 mun Cecile Anette Willoch sendiherra Noregs á Íslandi opna sýninguna ECHO í sýningarsal SíM á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum. Sýnendur hafa starfað saman undanfarin ár í Noregi og á Íslandi m.a. í Hvítahúsi á Snæfellsnesi 2022, og vinnustofudvöl og sýning í Kuntkvarteret Lofoten 2023. Auk þess vann hver um sig verk í upplagi í grafíkmöppu hópsins Bergmál/EKKO. Á sýningunni eru fjölbreytt verk frá undanförnum árum sem fjalla um náttúruna í víðasta skilningi þess orðs og draga fram ólíka sýn og upplifun.
Um verkefnið
Ecophilosophic Dialogues er samstarfsverkefni sex listkvenna frá Íslandi og Noregi. Það var sett á laggirnar að frumkvæði Hildar Björnsdóttur sem hafði þá sýn að skapa tengslanet fyrir íslenska og norska listamenn til að miðla hugmyndum, þekkingu ogfærni og skipuleggja sýningar, vinnustofur og listamannadvalir. Hver og ein þeirra kemur með ólíka nálgun og tækni að borðinuþegar unnið er hlið við hlið úti í náttúrunni, heima eða heiman.
Verkefnið hefur verið styrkt af Nordisk Kulturradet, Menningarsjóði Vesturlands og Mugg dvalarsjóði.
Listamaður: Echophilosophic Dialogue
Sýningarstjóri: Páll Haukur Björnsson