Er þetta norður?

Samsýning / Group Exhibition

Er þetta norður?

Hver er afmörkun „norðursins“? Hvar eru landamæri Norðurheimskautsins? Hvað einkennir þau sem sem eiga heima á slóðum Norðurheimskautsins? Eru verk listamanna frá norðurslóðum alltaf unnin undir áhrifum af búsetu þeirra þar? Samsýningin Er þetta norður? kannar svörin við þessum spurningum og þar eru sýnd verk eftir listamenn frá hinu víðfeðma norðri. Þátttakendur eru Gunnar Jónsson, Anders Sunna, Máret Ánne Sara, Inuuteq Storch, Nicholas Galanin, Dunya Zakharova, Marja Helander og Maureen Gruben. Heimkynni listamannanna eru Sama-svæði Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, Ísland, Grænland, Síbería, Alaska og Norður-Kanada. Á sýningunni verður sjónum beint að því hvernig er að búa nærri heimskautsbaug, hvaða sameiginlega þætti og tengingar er að finna á meðal listamanna sem búa þetta norðarlega. Þessi fjölbreyttu menningarsvæði og samfélög, sem ná frá Alaska til Skandinavíu og Síberíu, eiga eitt sameiginlegt: Norðurheimskautið – norðrið.

Listamaður: Samsýning / Group Exhibition

Sýningarstjórar: Daría Sól Andrews, Hlynur Hallsson

Dagsetning:

25.01.2025 – 27.04.2025

Staðsetning:

Norræna húsið

Sæmundargata 11, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýning

Opnunartímar:

Þri – sun: 10:00 – 17:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5