GERÐUR grunnsýning

Gerður Helgadóttir

GERÐUR grunnsýning

Gerður Helgadóttir (1928-1975) var frumkvöðull innan höggmyndalistar og brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist á Íslandi. Gerður ögraði viðurkenndum hugmyndum um myndlist með tilraunakenndri nálgun sinni á ólíkan efnivið, breytilega fagurfræði og vísanir sem mótuðust af breiðu áhugasviði hennar.

Tilraunakennd, stórhuga og framúrstefnuleg nálgun Gerðar markaði henni sess sem einn helsti myndhöggvari þjóðarinnar og kallast sterkt á við myndlist samtímans. Á tímum sem einkennast af örum breytingum, óendanlegum möguleikum og stöðugri óvissu veitir arfleifð Gerðar okkur innblástur. Verk hennar vekja okkur til umhugsunar og hvetja okkur til að nálgast ólíkan efnivið, fagurfræði, nálgun og vísanir á eigin forsendum.

Til grundvallar sýningarinnar er rannsóknarverkefni sem stendur yfir á safninu á listferli Gerðar Helgadóttur og safneign Gerðarsafns. Sett hefur verið upp rakastýrt varðveislurými inni í sýningunni til að framlengja listaverkageymslu safnsins og bjóða þannig sýningargestum að skoða fjölda verka auk þess að tryggja bestu varðveisluskilyrði fyrir verkin.

Listamaður: Gerður Helgadóttir

Dagsetning:

11.05.2023 –

Staðsetning:

Gerðarsafn

Hamraborg 4, 200 Kópavogur, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið daglega: 12 - 18

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur