GÍA - List án landamæra
Gígja Guðfinna Thoroddsen
Sýning á verkum Gígju Guðfinnu Thoroddsen, eða Gíu, sem var listamaður hátíðarinnar List án landamæra árið 2017. Safnasafnið vinnur nú að bók um ævistarf hennar. Sýningin er í Stúdíói Gerðar. Gígja Guðfinna Thoroddsen, Gía, (1957-2021) bjó og starfaði í Reykjavík. Hún stundaði nám hjá Hring Jóhannessyni listmálara í Myndlistarskóla Reykjavíkur 1975, Vallekille lýðháskólanum í Danmörku 1975 og sótti þriggja mánaða teikninámskeið í Árósum í Danmörku 1976, þá fór hún á námskeið hjá Helga Skúlasyni leikara 1977.
Listamaður: Gígja Guðfinna Thoroddsen