Kahalii

Arngunnur Ýr

Kahalii, Arngunnur Ýr

Á sýningunni getur að líta ný og nýleg málverk eftir Arngunni Ýr, þar sem listakonan beinir sjónum að eigin landnámi á Hawaii, auk þess að leiða hugann að samspili umhverfis, sögu og landnýtingar. Þar býr hún sér nú heimili á fögrum stað þar sem náttúran víkur smátt og smátt fyrir manngerðum byggingum og eru listaverkin þannig samofin marglaga sögu landsins. Þá stóð eitt sinn þorp Hawaii-búa á sama svæði en hafið tók þorpið að endingu til sín með flóðbylgju og eirði engu. Landið féll síðar í hendur sykurbaróna og í dag eiga fáir Hawaii-búar kost á ákjósanlegustu lóðunum á svæðinu sökum efnahagslegs ójöfnuðar.

Listakonan byggir verkin á mótífum af gróðri sem einkennir svæðið og veltir fyrir sér eigin forréttindastöðu sem aðkomumaður, þar sem hún fær að njóta lands sem er mörgum utan seilingar. Þá fanga verkin einnig þá togstreitu sem myndast þegar nær ósnortin náttúra umbreytist í nýja byggð. Á þennan hátt tekst Arngunnur jafnframt á við eigin hlut í þessu ferli og veltir upp spurningum um hugtök eins og eignarhald, það að tilheyra og áhrif sögunnar á líðandi stund. Fela verkin því jafnt í sér persónulegar vangaveltur listakonunnar sem og víðtækari umfjöllun um jarðrask og þróun byggðar, sem gefur áhorfendum að sama skapi tækifæri til að íhuga eigin samband við sögu og umhverfi.

Arngunnur Ýr (f. 1962) útskrifaðist með BFA-gráðu í málaralist frá San Francisco Art Institute árið 1986. Hún var síðar gestanemi við Gerrit Rietveld-akademíuna í Amsterdam, Hollandi, 1989 til 1990 en sneri aftur til Kaliforníu og lauk meistaragráðu í málaralist frá Mills-háskólanum í Oakland árið 1992. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, svo sem úr sjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur og árið 2005 hlaut hún styrk frá Pollock-Krasner Foundation. Verk hennar hafa verið sýnd hér á landi, í Evrópu og Bandaríkjunum og eru verk eftir hana ýmist í eigu opinberra safna, stofnana og einkasafnara, bæði hér á landi sem erlendis. Arngunnur býr í Kaliforníu og á Íslandi.

Listamaður: Arngunnur Ýr

Dagsetning:

09.11.2024 – 19.01.2025

Staðsetning:

Hafnarborg

Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Mánudagur12:00 - 17:00
ÞriðjudagurLokað
Miðvikudagur12:00 - 17:00
Fimmtudagur12:00 - 17:00
Föstudagur12:00 - 17:00
Laugardagur12:00 - 17:00
Sunnudagur12:00 - 17:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5