Leyfðu þér að finna

Eva Jenný Þorsteinsdóttir

LG // Litla Gallerý - Eva Jenný Þorsteinsdóttir

Þegar óvænt veikindi banka skyndilega upp á og draga mann niður á jörðina upplifir manneskjan allskonar tilfinningar. Stundum meðvitaðar, stundum ómeðvitaðar og stundum löngu seinna. Myndirnar tákna tilfinningalegt bataferli eftir veikindi og á meðan veikindum stóðu. Allt frá því að vera hugrökk og buguð, upplifa óvissu og biðina. Margar tilfinningar fram og tilbaka. Eva Jenný Þorsteinsdóttir (1991) er með Bsc í sálfræði og hefur verið að vinna innan velferðarþjónustu í mörg ár. Hún hefur alltaf haft áhuga á að teikna en aldrei gefið því raunverulegt rými fyrr en hún sóttist í það óvænt eftir aðgerð sem hún fór í haustið 2023. Hún stoppaði alltaf á fullkomnunaráráttunni svo þegar hún byrjaði að teikna eftir aðgerðina notaðist hún einungis við penna til að sigrast á fullkomnunaráráttunni og vera meðvitað í flæði með hverja mynd. Verkin eru gerð frá haustinu 2023. Sýningaropnun verður fimmtudaginn 28. nóvember frá 18:00-20:00 og allir velkomnir! Aðrir opnunartímar: Föstudagur 29. nóvember 15:00 - 20:00 Laugardagur 30. nóvember  13:00 - 18:00 Sunnudagur 01. desember  13:00 - 18:00 Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

Listamaður: Eva Jenný Þorsteinsdóttir

Sýningarstjóri: Elvar Gunnarsson

Dagsetning:

28.11.2024 – 01.12.2024

Staðsetning:

LG // Litla Gallerý

Strandgata 19, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðSýningViðburður

Opnunartímar:

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5