Nánd hversdagsins
Agnieszka Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orri Jónsson, Sally Mann
Samsýningin Nánd hversdagsins samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands sem er tvíæringur og stendur yfir 18.–26. janúar næstkomandi.
Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst. Sýningin hverfist um þá hugmynd að ákveðin augnablik sé aðeins unnt að fanga með því að ljósmyndarinn byggi upp nánd, eftirtekt og íhygli gagnvart viðfangsefnum sínum yfir langan tíma. Verkin á sýningunni bera þess glöggt vitni hve vel ljósmyndararnir þekkja þá sem þeir eru að mynda enda er nálgun þeirra þrungin væntumþykju. Ljósmyndirnar sýna einnig hve viljugar fyrirsæturnar eru til að taka þátt í hinu listræna ferli. Traustið og skilningurinn sem þar er að verki jaðrar jafnvel stundum við að vera listrænt samstarf.
Listamenn: Agnieszka Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orri Jónsson, Sally Mann
Sýningarstjóri: Pari Stave