Óstöðugt land

Þorgerður Ólafsdóttir, Gunndís Ýr Finnbogadóttir

Lítið hús, þyrlupallur og tjald sjást í hrjóstrugu landslagi Surtseyjar á samsettri loftmynd

Óstöðugt land er sýningarverkefni og listrannsókn Gunndísar Ýrar Finnbogadóttur og Þorgerðar Ólafsdóttur sem byggir á viðtölum við einstaklinga sem hafa ferðast til Surtseyjar. Sýning þeirra, sem ber sama titil, opnar í Vestursal Gerðarsafns þann 26. október 2024.

Sýningin Óstöðugt land byggir á samstarfi Gunndísar og Þorgerðar en þær hafa tekið viðtöl við einstaklinga sem ferðuðust til Surtseyjar á árunum 1963 – 2022 með fjölbreytt markmið og ólíkan tilgang. Viðtalsverkið grundvallast á örfyrirbærafræðilegum viðtölum (e. micro – phenomenological interviews) en sú aðferð gengur út á það að fá viðmælendur til að lýsa reynslu sinni af umhverfi Surtseyjar og varpa fram lýsandi mynd af upplifun sinni og minningar af fyrri (líkamlegri) reynslu.

Viðtölin voru tekin upp í Surtseyjarstofu á Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ), þar sem heimildarsafn Surtseyjarfélagsins er varðveitt ásamt ótal verðmætum steinasýnum frá eyjunni sjálfri frá upphafi eldgoss. Viðtölin mynda uppistöðuna í nýrri vídeóinnsetningu sem ber titilinn Óstöðugt land og eru skrásett með ýmsu móti, sem myndbandsupptökur, afritun í textaformi, gegnum hljóð og teikningar. Upptaka viðtalanna var í umsjón Bjarna Þórs Péturssonar og klippivinna er í samstarfi við Hrafnkel Tuma Georgsson. Sýningastjórn Becky Forsythe.

Listamenn: Þorgerður Ólafsdóttir, Gunndís Ýr Finnbogadóttir

Sýningarstjóri: Becky Forsythe

Dagsetning:

30.10.2024 – 19.01.2025

Staðsetning:

Gerðarsafn

Hamraborg 4, 200 Kópavogur, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið daglega: 12 - 18

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Um okkur