Rás

Ásta Fanney Sigurðardóttir, Logi Leó Gunnarsson, Hildur Elísa Jónsdóttir, Aki Onda

Ras listahatid rvk

Hvernig er hægt að skapa sýningu sem höfðar fyrst til eyrna, en ekki augna? Sýningin er hugsuð sem mögulegt svar við þeirri mótsögn sem felst í því að „sýna hljóð“ og verður í leiðinni leikur eða þraut.Í spurningunni felst ákveðinn ómöguleiki, en hljóði fylgir yfirleitt sjónræn umgjörð. Erfitt er að koma í veg fyrir að myndir birtist í umhverfinu eða í huga hlustandans. Á sýningunni er hljóð því skoðað út frá sínum efnislegu og eðlislægu eiginleikum. Þegar hljóð fær að vera hljóð eitt og sér verða tengingar þess við minningar okkar og aðra staði skýrari og áþreifanlegri. Við tökum að finna líkamlega fyrir hljóðinu, færast úr stað, ferðast um hljóðheiminn. Samhliða sýningunni verður sótt í arkífefni úr safni Nýlistasafnsins, ásamt fleiri hljóðarkífum. Gestir mega búast við óvæntum uppákomum yfir sýningartímann.

Listamenn: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Logi Leó Gunnarsson, Hildur Elísa Jónsdóttir, Aki Onda

Sýningarstjórar: Sunna Ástþórsdóttir, Þorsteinn Eyfjörð

Dagsetning:

13.06.2024 – 04.08.2024

Staðsetning:

Nýlistasafnið

Marshall House, Grandagarði 20, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningListahátíð í ReykjavíkHjólastólaaðgengiEnginn aðgangseyrir

Opnunartímar:

Mið – sun: 12:00 – 18:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5