Spinning the Landscape Yarns

Sanna Vatanen

Sanna Vatanen Deiglan

Finnska textíllistakonan Sanna Vatanen á langvarandi tengsl við Ísland, þau eru grunnurinn að verkum hennar á dvalartímanum í Gestavinnustofu Gilfélagsins. Hún mun spinna íslenska ull og búa til einstakt handspunnið garnsafn, Landslags-garn. Garnsafnið sækir innblástur í íslenskra náttúru og endurtekur liti ösku, mosa, snjós, íss, hrauns, þoku, sands, sjós, himinns, engja…

Innblásin af sérkennum íslensku ullarinnar, lengra, grófara ytra lagi (Tog) og fínna undirlagi (Þel), sem gefur óspunnum þræðinum einstakan þéttleika. Plötulopi frá Álafossi er notaður í verkefnið. Ullin sem þegar er í plötum er mjög skemmtileg að spinna úr og blanda saman litunum úr mörgum ólíkum ullarlitaplötum. Plötulopi er einnig efnið sem upphaflega var notað í hinar goðsagnakenndu lopapeysur þar sem kostir íslensku ullarinnar koma vel fram í blautu og köldu veðri, vegna þess að ullin er notuð óspunnin.

Garnsafnið verður síðan notað sem efniviður í handprjónað peysusafn Landscape Lopis (vinnuheiti). Hugmyndin að baki „Landscape Lopis“ er að kynna persónulegar minningar og upplifanir yfirfærðar í spuna og prjónles - og þannig fá þær að birtast opinberlega í klæðilegum fötum í daglegu lífi í stað þess að geymast einungis sem minningar innan húss. Að nota peysur sem póstkort og segja sögu.

„Umhverfistextíllistarverkefnin sem ég tók þátt í á Íslandi á meðan ég var í námi höfðu varanleg áhrif á mig. Síðan þá hef ég snúið aftur og aftur í kröftuga náttúru Íslands og upplifunin er ný í hvert skipti.“

Sanna Vatanen nam við Lista- og hönnunarháskólann (nú AALTO háskólann) í Helsinki, Finnlandi. Á ferli sínum hefur hún, auk þess að sýna, gefið út 7 prjónabækur þar sem hún fjallar meðal annars um textíltækni og lagt áherslu á notkun heimafenginnar ullar og annarra sjálfbærra og endurunninna efna. Hún býr á eyjunni Kökar í Álandseyjaklasanum, þar sem hún vinnur að nýjum verkefnum sem snúast um ull Álandseyja.

Listamaður: Sanna Vatanen

Dagsetning:

24.02.2024 – 25.02.2024

Staðsetning:

Deiglan

Kaupvangsstræti 23 , 600 Akureyri, Iceland

Merki:

NorðurlandSýning

Opnunartímar:

Sjá vefsíðu

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur