Hamraborg festival 2025 - opið kall

15.01.2025
Hamraborg festival 2025

Kallað er eftir myndlistarfólki, dönsurum, tónlistarfólki, stafrænu listafólki, hönnuðum, sviðshöfundum, skáldum, hugsuðum, leiðbeinendum vinnusmiðja og skapandi fólki af öllu tagi.

Vilt þú sýna verk þín í óhefðbundnu rými? Halda viðburð? Skipuleggja vinnusmiðju? Vinna með nærsamfélaginu?

Kanna og afhjúpa leyndardóma Hamraborgar? Hamraborg Festival er listamannarekin hátíð sem fer fram ár hvert í hjarta Kópavogs. Í ár er hátíðin haldin dagana 29. ágúst - 5. september og umsóknarfrestur 12. febrúar kl. 15:00.

Fimm ára áfanganum verður fagnað með því að einblína á grósku, næringu og að viðhalda þeim sterku rótum sem hátíðin hefur skotið niður í Hamraborg. Hátíðin býður listafólki að vinna með nærumhverfi Hamraborgar með viðburðum og sýningum sem teygja anga sína frá búðargluggum að menningarhúsum til almenningsrýma.

Hamraborg Festival er opin og þverfagleg hátíð sem fagnar allri listsköpun og fjölbreyttum verkefnum sem m.a. kanna sjálfbærni og félagsleg tengsl, sem og verkefnum sem hlúa að menningarlegum og/eða náttúrubundnum rótum. Í ár verður haldin opnunarskrúðganga í Hamraborg með lúðrasveit og fjölbreyttum uppákomum. Tónlistar- og listafólk getur sótt um með tillögum fyrir skrúðgönguna eða verkum fyrir lúðrasveitina. Auk þess verður mikil áhersla lögð á staðbundin listaverk sem fjalla um margbreytileika og fagurfræði Hamraborgar, hvort sem það er sjónmenning, arkitektúr, hljóðmynd, bragðheimur, andrúmsloft, flóra eða dýralíf.

Listafólki úr öllum kimum listasenunnar á Íslandi og víðar er boðið að sækja um. Listafólk sem hefur persónulega tengingu við Kópavog er eindregið hvatt til þess að sækja um.

Hverjir geta sótt um?

Hátíðin tekur við umsóknum frá listamönnum óháð aldri, uppruna, starfsaldri eða menntunarstigi. Einstaklingum sem og hópum er velkomið að sækja um.

Hvernig á að sækja um?

Umsóknareyðublað má finna á vefsíðu Hamraborgar.

Þóknun er greidd fyrir hvert valið verkefni.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5