Samkeppni um listaverk á Sóleyjartorg við nýjan Landspítala

23.05.2023
Samkeppni um listaverk á Sóleyjartorg

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) býður myndlistarmönnum að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um varanleg útilistaverk. 

Samkeppnissvæðið er Sóleyjartorg, aðalaðkomutorg meðferðarkjarnans, ásamt anddyri byggingarinnar. Sóleyjartorg nær frá aðalbyggingu gamla Landspítalans yfir að miðgötu svæðisins, Burknagötu. Samkeppnin mun fara fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna, þ.e. lokuð samkeppni með opnu forvali. Í fyrri áfanga samkeppninnar, forvali, mun forvalsnefnd velja fimm myndlistarmenn og/eða listamannahópa úr innsendum þátttökutilkynningum til þátttöku í seinni hluta samkeppninnar. Tilkynning um þátttöku skal innihalda nafn/nöfn þátttakenda, kennitölu/-r og netfang/-föng. Stuttan texta þar sem gerð er grein fyrir áhuga á verkefninu ásamt forsendum og hæfni til þess að útfæra varanleg útilistaverk. Ferilsskrá og myndir af fyrri verkum. Lauslega tillögu að fyrirhuguðu listaverki/-um. Aðrar upplýsingar sem talið er að geti styrkt þátttökutilkynninguna. Rétt til að tilkynna þátttöku í forvali hafa allir myndlistarmenn. Tungumál samkeppninnar er íslenska. Fyrirspurnir í forvalshluta samkeppninnar skal senda á netfangið: trunadur@nlsh.is, fyrir 2. júní. 

Umsóknir um þátttöku sendist á netfangið: trunadur@nlsh.is fyrir kl. 16:00, 9. júní 2023. 

Allar nánari upplýsingar má finna á www.nlsh.is

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur