Höfuðstöðin
Í Höfuðstöðinni hefur innsetning Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter, Chromo Sapiens, fengið aðsetur til frambúðar en verkið var framlag Íslands á Feneyjartvíæringinn 2019. Þá var verkið einnig sett upp í Listasafni Reykjavíkur árið 2020 og var þar ein mest sótta sýning safnsins frá upphafi. Innsetningin samanstendur af þremur litríkum hellum sem umlykja sjóndeildarhring gesta á meðan tónverk eftir íslensku hljómsveitina HAM hljómar um rýmin. Gestir ganga inn í verkið sem homo sapiens og er boðið að tengjast sínu innra landslagi með örvun skynfæranna, þar sem áfangastaður ferðalagsins er sjálfið. Þegar gengið er út úr verkinu hefur áhorfandinn umbreyst í Chromo Sapiens.