Leiðsögn sýningarstjóra: Kjarval og 20. öldin kl. 20:00

Jóhannes S. Kjarval

Edda Halldórsdóttir

Edda Halldórsdóttir sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Kjarval og 20. öldin. Þegar nútíminn lagði að, á Kjarvalsstöðum fimmtudaginn langa 25. janúar kl. 20.00Kjarval var fæddur árið 1885 og lést árið 1972. Himinn og haf eru á milli þessara tímapunkta í menningarsögunni og samfélaginu öllu á heimsvísu. Þetta var tími mikilla félagslegra umbreytinga, iðnvæðingar, þéttbýlisþróunar og tækniframfara. Íslenskir listamenn fóru utan til náms og komu heim með nýjar hugmyndir, innblásnir af þeim straumum og stefnum sem þeir kynntust í Evrópu.Á sýningunni getur að líta myndlistarverk íslenskra listamanna frá um sex áratuga skeiði eftir aldamótin 1900. Verkin spanna það tímabil sem listmálarinn Jóhannes S. Kjarval var starfandi.Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

Listamaður: Jóhannes S. Kjarval

Dagsetning:

25.01.2024

Staðsetning:

Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginFimmtudagurinn langiViðburðurHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið alla daga: 10:00 – 17:00

Fimmtudagar opið til kl. 22:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur