Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir

Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir

Kjarvalsstaðir voru teknir í notkun árið 1973 og er fyrsta byggingin hérlendis sem hönnuð er sérstaklega fyrir myndlist. Á Kjarvalsstöðum eru reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885 -1972) enda skipar hann sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar.

Þar eru jafnframt sýningar á málverkum og skúlptúrum eftir nafnkunna innlenda og erlenda meistara nútímalistar. Gluggar hússins ná frá gólfi og upp í loft svo vel sést yfir Klambratún sem var sérstaklega hannað og skipulagt sem hluti af listrænni menningu Reykjavíkurborgar. 

Staðsetning:

Flókagata 24, 105 Reykjavík

Merki:

SafnHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið daglega 10:00 – 17:00

Fimmtudaginn langi: 10:00 – 22:00

Installation view - Red Thread - Reykjavik Art Museum - Kjarvalsstaðir - Hildur Hákonardóttir

Hildur Hákonardóttir, Rauður þráður, 2023

Yfirlit Kjarvalsstaðir

Hekla Dögg Jónsdóttir, 0° 0° Núlleyja, 2023

Kjarval and the 20th.

Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að, 2023

Installation

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur