Kvöldganga kl. 20:00 — Listaverkin í Laugardalnum

Samsýning / Group Exhibition

Í þessari kvöldgöngu verður gengið á milli útilistaverka í Laugardalnum þar sem finna má fjölmörg útilistaverk eftir ýmsa listamenn. Viðburðurinn hefst kl. 20.00 og er upphafsstaður í garði Ásmundarsafns við Sigtún. Björk Hrafnsdóttir frá Listasafni Reykjavíkur hefur umsjón með leiðsögninni og eru gestir beðnir um að klæða sig eftir veðri.

Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Bókmenntaborg Reykjavík Unesco standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Fylgjast má með dagskránni á Facebook. Þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna þegar göngurnar eru í Viðey

Listamaður: Samsýning / Group Exhibition

Dagsetning:

25.07.2024

Staðsetning:

Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn

Sigtún , 104 Reykjavík, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðLeiðsögnFimmtudagurinn langiHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Maí – sep. Opið daglega: 10 – 17

Okt – apr. Opið daglega: 13 – 17

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Um okkur