Uppúr vasanum drógu þau spýtu
Tara og Silla
Það brakar í spýtunum. Þær hvæsa, hvísla og syngja. Spýtur eru lagðar hlið við hlið, spýtu fyrir spýtu.
Á einkasýningu Töru og Sillu Uppúr vasanum drógu þau spýtu sýna þær ný verk sem vefjast inn í og upp úr gólfinu. Með verkunum draga Tara og Silla athygli að gólfinu sem rými. Við kynnumst gólfinu í gegnum hreyfingu músarinnar, söng fjalarinnar og áferð spýtunnar. Tara og Silla vinna verk með því að einangra fyrirbæri, brjóta þau í sundur og púsla brotunum saman.
Megin þemu í verkum Töru og Sillu eru fögnuður, vinátta og samskipti sem birtast einkum sem vídeóverk, gjörningar og innsetningar. Oftar en ekki vinna þær með þáttöku í verkum sínum og mottó-ið þeirra er: „Playful not hostile’. Að þessu sinni snúa þær sér að gólfinu í heildrænni innsetningu sem er óður til þess efnis og rýmis sem við göngum á.
Listamaður: Tara og Silla