Venjulegar myndir

Ívar Brynjólfsson, Kristín Sigurðardóttir, Lukas Kindermann, Ragnheiður Gestsdóttir, Tine Bek

Venjulegar myndir Gerðarsafn

Sýningin Venjulegar myndir birtir ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar í samtali við verk Emmu Heiðarsdóttur, Haraldar Jónssonar, Joe Keys, Kristínar Sigurðardóttur, Lukas Kindermann, Ragnheiðar Gestsdóttur og Tine Bek. Listamenn sýningarinnar eiga það sameiginlegt að veita ákveðnum hlutum ítrustu athygli, brengla hversdaginn með því að fletja hann út eða umbreyta með öðrum hætti. Á sýningunni myndast samtal á milli myndaraða Ívars frá árunum 1991-2023 við skúlptúra, vídeóverk, ljósmyndaverk og innsetningar sem einnig spretta úr skynjun mannverunnar á umhverfi sínu.

Sýningin opnar í tveimur fösum en á milli sala þróast og breytist umfjöllunarefni og nálgun listamanna sýningarinnar.

Venjulegir staðir opnar í vestursal Gerðarsafns 13. janúar þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er kannað með verkum sem vísa í staðleysur, hversdagsleika og brenglun hans.

Venjulegar myndir opnar í austursal Gerðarsafns 10. febrúar þar sem ljósmyndatæknin sjálf verður könnuð með vísunum í eðli miðilsins og samband ljósmyndarinnar við vísindi sem og náttúruleg fyrirbæri.

Listamenn: Ívar Brynjólfsson, Kristín Sigurðardóttir, Lukas Kindermann, Ragnheiður Gestsdóttir, Tine Bek

Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir, Hallgerður Hallgrímsdóttir

Dagsetning:

10.02.2024 – 31.03.2024

Staðsetning:

Gerðarsafn

Hamraborg 4, 200 Kópavogur, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið daglega: 12 - 18

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur