Við sjáum óvænt abstrakt

Group exhibition

Coincidentally, We See Abstractly

Á sýningunni Við sjáum óvænt abstrakt er teflt saman þremur hópum listamanna af ólíkum kynslóðum sem koma úr mismunandi áttum. Fyrstan má telja hóp listamanna sem fram kom í kringum seinni heimsstyrjöld og unnu með hugmynda- og fagurfræði abstrakt myndlistar. Þessir listamenn víkkuðu á markvissan hátt út heim myndrænnar skynjunar með virku samtali við listasöguna og leituðu nýrra og persónulegra leiða í myndmáli sínu. Í öðru lagi eru sýnd verk fatlaðra listamanna sem vinna beint og óheft á flötinn, eru í sterku samtali við sinn innri tilfinningaheim og auðvitað líka upplifun sína af heiminum og margs konar myndlist. Í þriðja lagi eru sýnd verk annarra samtímalistamanna sem hafa hlotið formlega menntun á sviði myndlistar og vinna á ólíkan hátt og vinna líka abstrakt myndverk. Þessir listamenn vinna að list sinni á tímum þegar nánast allt er leyfilegt og mögulegt – og samtal við listasöguna er ekki endilega efst á baugi. Frekar má segja að samtal þeirra sé við ólíka efnisheima og raunveruleika þar sem hversdagslegir hlutir og fyrirbrigði fá nýtt og óvænt hlutverk og samhengi.

Anna Hrund Másdóttir

Arna Ýr Jónsdóttir

Ásgeir Ísak Kristjánsson

Ásmundur Stefánsson

Davíð Örn Halldórsson

Gerður Helgadóttir

Guðmunda Andrésdóttir

Haraldur Jónsson

Hjörleifur Sigurðsson

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir

Kolbeinn Jón Magnússon

Lára Lilja Gunnarsdóttir

Nína Tryggvadóttir

Páll Haukur Björnsson

Sigurður Reynir Ármannsson

Steinunn Önnudóttir

Svavar Guðnason

Þorvaldur Skúlason

Listamaður: Group exhibition

Sýningarstjóri: Kristinn G. Harðarson

Dagsetning:

13.04.2024 – 26.05.2024

Staðsetning:

Listasafn Íslands

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið alla daga: 10:00 – 17:00 Fimmtudaginn langi: 10:00 – 22:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur