Sæmundur Þór Helgason, ljósmynd: Verena Blok

Sæmundur Þór Helgason til New York

Myndlistarmaðurinn Sæmundur Þór Helgason hefur verið valinn úr hópi umsækjenda til vinnustofudvalar hjá International Studio & Curatorial Program (ISCP) í New York sumarið 2026. Dvölin spannar þrjá mánuði og er fjármögnuð af Myndlistarráði.

Tilkynningar
Heiðar Kári Rannversson, sýningarstjóri, segir frá sýningunni í Tókýó. Ljósmynd: Timothée Lambrecq.

Íslensk myndlist í Tókýó

Myndir frá opnun ferðasýningarinnar “Outside Looking In, Inside Looking Out”, í Tókýó í Japan 30. maí 2025. Sýningin var hluti af dagskrá menningarhátíðarinnar Taste of Iceland og er unnin í samstarfi við Íslandsstofu og íslensk sendiráð.  

Greinar og viðtöl
Kjarval á Austurlandi, Skaftfell.

Myndlistarsumarið 2025 um allt land

Það er gaman og gefandi að skoða myndlist og þetta sumarið er af nógu að taka um allt land. 

Greinar og viðtöl
MLS-radgjof-2025

Myndlistarsjóður – ráðgjöf fyrir umsækjendur

Fyrir haustúthlutun myndlistarsjóðs 2025 býður Myndlistarmiðstöð upp á ráðgjöf fyrir umsækjendur með nokkrum leiðum. 

Styrkir
MLS-haust-2025

Opið fyrir umsóknir í myndlistarsjóð - haust 2025

Myndlistarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir fyrir haustúthlutun árið 2025. Umsóknarfrestur er til kl. 16 mánudaginn 18. ágúst. 

Styrkir
TOKAS residency 2025

Auglýst eftir umsóknum í TOKAS

Gestavinnustofan TOKAS í Japan auglýsir eftir umsóknum.

Opin köll

Cindercat, færiband og hafmeyjusporður

Heimsókn í vinnustofu Tristan Elísabetar Birtu:

Önnur vinnustofuheimsókn okkar var til Tristan Elísabetar Birtu í Laugardalnum. Tristan er 33 ára myndlistar- og gjörningalistamaður sem býr einnig til tónlist undir nafninu AfterpartyAngel. Þó svo að listsköpun hennar fjalli um margslungin og flókin málefni líkt og sjálfsmynd, kynvitund og kvenleika, er hún sveipuð leikgleði og ævintýrabrag. Við spjölluðum um lífið og listina við Tristan.

Greinar og viðtöl

Að njóta botnlauss hyldýpis völundarhússins

Greinin „Að njóta botnlauss hyldýpis völundarhússins“: Um óperu í íslenskri samtímalist eftir Adam Buffington birtist í 5. tbl Myndlist á Íslandi, útgefið 2025. Hugmyndir tengdar óperum hafa orðið æ meira áberandi í íslenskri myndlist. Óperan bræðir saman mörg listform og það má geta sér til að einmitt þetta heilli yngri myndlistarmenn sem finna þar hefð sem kallast á við þverfaglega nálgun hugmyndalistarinnar.

Myndlist á Íslandi

Staða starfsnema laus til umsóknar – Sequences 2025

Borderlands Poetics: Rewilding Tongues auglýsir lausa til umsóknar stöðu starfsnema við Sequences myndlistarhátíðina, sem fer fram í október 2025.

Opin köll
Voruthlutun MLS 2025

Myndlistarsjóður vorúthlutun 2025

Logi Einarsson, menningarráðherra afhenti myndlistarfólki styrki úr  við hátíðlega athöfn þann 10. apríl 2025. Alls var 38 milljónum króna úthlutað til 61 verkefnis.

Styrkir

Fimmtudagurinn langi - myndlist í borginni!

Síðasta fimmtudagur hvers mánaðar er Fimmtudagurinn langi. Af því tilefni bjóða söfn og sýningarstaðir upp á lengdan opnunartíma. Um að gera að nýta sér tilvalið tækifæri til að bregða sér af bæ og upplifa líflega myndlistarsenu!

Verkefni

Myndlistarmiðstöð stendur að fjölbreyttum verkefnum innlands og utan: Íslensku myndlistarverðlaununum, hlaðvarpinu Out There, Umræðuþráðum, Sequences hátíðinni og tímaritinu Myndlist á Íslandi

Svipmynd

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5