Myndlist á Íslandi

Tímaritið Myndlist á Íslandi er gefið út einu sinni á ári. Ritið er hugsað sem miðja fyrir myndlistarumfjöllun hér á landi – öflugur vettvangur fyrir umræðu og gagnrýna greiningu á myndlist. 

Tímaritið Myndlist á Íslandi (Art in Iceland) er gefið út einu sinni á ári í veglegri og fallegri prentútgáfu bæði á íslensku og ensku. Ritið er hugsað sem miðja fyrir myndlistarumfjöllun hér á landi – öflugur vettvangur fyrir umræðu og gagnrýna greiningu á myndlist. Í tímaritinu eru fjölmargar greinar, viðtöl og umfjallanir, m.a. um sýningar og viðburði á undangengnu ári, fjallað er á gagnrýnan hátt um starfsumhverfi myndlistarinnar og stöðu þess listafólks sem myndar senuna á Íslandi. Við birtum umfjöllun Myndlistarráðs um handhafa Myndlistarverðlaunanna árið 2022, listaverk í pappírs galleríinu okkar, umfjöllun um íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum, aðsendar greinar og fleira. Tímaritið er samstarfsverkefni Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), Myndlistarmiðstöðvar, myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Listfræðafélags Íslands og Myndlistarráðs. Í ritstjórn  sitja Starkaður Sigurðarson, Becky Forsythe og Hólmar Hólm.

Myndlist á Íslandi tbl. 3
Myndlist á Íslandi tbl. 2
Myndlist á Íslandi
Myndlist á

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, chromo
Dozie, Precious
Perpetual Motion
Islensku myndlistarverdlaunin 2023
Um okkur