Íslensku myndlistarverðlaunin 2025
Það var líflegt og margmennt á verðlaunaafhendingu Íslensku myndlistarverðlaunanna í Iðnó, fimmtudagskvöldið 20. mars. Verðlaunin voru afhent þar í áttunda sinn. Myndlistarráð stendur að baki verðlaununum sem hafa það að meginmarkmiði að vekja athygli á því sem vel var gert á sviði myndlistar á liðnu ári.
Útgáfa - Íslensku myndlistarverðlaunin 2025
Liðin eru sjö ár frá því að Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur árið 2018. Það hefur sýnt sig að verðlaunin vekja athygli á því sem telst vera framúrskarandi á sviði myndlistar hér á landi og skapa almennt aukna umræðu um myndlist í samfélaginu. Í ár verða verðlaunin veitt í áttunda sinn og er reynsla komin á mikilvægi þeirra fyrir myndlistarsamfélagið, eflingu íslenskrar samtímamyndlistar og kynningu, bæði hér á landi og erlendis á því sem telst markverðast hverju sinni.